2022-08-21 sud
Kjarri kom kl. 09:00 til að hjálpa mér við geymsluna. Við kláruðum níunda lagið og holufylltum allt með járnum.
Gummi Salla fékk hjá mér 5x3m af 8mm kambstáli.
Allar færslur
Kjarri kom kl. 09:00 til að hjálpa mér við geymsluna. Við kláruðum níunda lagið og holufylltum allt með járnum.
Gummi Salla fékk hjá mér 5x3m af 8mm kambstáli.
Eftir frábæran dag í gær með aðstoð Kjarra við að klára níunda lagið og steypu í öll holrými, var eins og allt líkamlegt álag á Halldórsstöðum væri erfitt. Ég var því meira í vélavinnu með vélina á nýjum beltum, tók stuttan matartíma og sleppti kaffinu og fór heim kl. 16:00. Enginn var í Bænum né Húsinu. Bóndinn á Ljótsstöðum kíkti við í gott spjall. Einnig kom nafni við og eins til að sjá yfir dallinn til gæsa.
Í lok vinnudagsins eru botnsteinarnir komnir í ca. 8m af 12, auk eins steins í lag tvö.
Í gær slitnaði beltið á smágröfu Garðars Héðinssonar við vinnu á Halldórsstöðum, Bærinn. Upphleypt númer er á beltinu sem sást ekki vel þar sem slitið var í gengum númerið. Garðar pantaði bæði beltin, tók gröfuna til Húsavíkur og kom henni upp í Halldórsstaði um hádegið í dag.
Undanfarnir dagar hafa verið nokkuð hlýir og að mestu lausir við úrkomu. Ég er farinn að greina mun hægari vöxt hjá trjá og -lynggróðri. Sumarið virðist ætla að enda einhverntíman á næstunni.
Undanfarið hefur gengið svolítið betur við hleðslu geymslunnar. Ég er kominn með næstum nóg af því efni sem ég tel þurfa til að klára geymsluna s.s. eins og þakpappa, pappasaum, þaksaum, þakklæðninguna, 3" nagla, bárujárnið, þakrennu, sement, þrjá glugga og hurð.
Ég er hálfnaður með sjöunda lagið sem um leið er annað lag ofan gluggasyllu og hef notað 270 steina af 600, þannig að það lítur enn út fyrir að vera nóg.
Ég hef leyfi frá Steinsteypi til að taka steypumöl hjá þeim og pússningasandinn tek ég úr Bjössanámu sem er við afleggjarann heim að fuglahúsinu sunnan við Kaldbak.