20201031 laud
Jú, eitt og annað hefur borið við síðan 17. september sl.
Húsið er komið á staðinn, rafmagn komið inn, kalt vatn einnig og tengt við eldhúsvask, baðvask og tengt salerni en ekki sturtubotninn.
Gluggi sem flóttaleið var settur á suðurhliðina.
Ég sleppi hitaveitunni og keypti mér 50L hitakút á 50.000kr sem ekki hefur náðst að tengja ennþá.
Byggingarleyfið, bráðabyrgðaheimlögn á rafmagni, lóðaleigu til áramóta, flutninginn á húsinu, lagnaefni og annað slíkt hef ég þegar greitt.
Eftir að gera upp við rafvirkja, pípara, Rúnar Óskarsson, SimmaTogga og RARIK
Í dag sótti ég Kia til Húsavíkur og skildi C4 eftir hjá Bílaleigunni. Þeir fundu út að sveifarássneminn orsakaði að bíllinn snögg drap á sér þegar minnst varði. Ég notaði hann í allan dag án vandkvæða.
Viðfangsefni mín voru:
- Klára að gúmmímála forstofu og bað.
- Hitta Ingólf Freysson út af hvort þau ætli að hafa snjóbræðslu undir stéttinni.
- Setja rafstöð inn í gám og taka möl frá Kára með mér heim. Koma líka 3m leiðararörum að vinnusvæði hjá Ingólfi.
- Byrja að færa sand heim að sökkli og þétta svo blási minna undir húsið. Koma bretti fyrir við útidyr. (sjá mynd)
- Kanna verð á steinum hjá Eyþóri.
Þetta tókst nú allt í dag, en áður hafði ég tæknistýrt AA-fundi kl. 08:00 og farið á bókarfund 09:30.
Í fyrramálið verð ég fundarstjóri/ritari kl. 08:00 og tæknimaður á fundi um kvöldið.