2022-06-18 laud
Kom heim frá Reykjavík í gær á LandCruser Bílaleigu Húsavíkur með hjólið í kerru sem leigð var hjá BYKO, en þeir eru hættir að rukka fyrir skilagjald ef ég t.d. leigi kerru í Rvík og skila á Akureyri. Daggjaldið er tæpar átta þúsund og því er sautjándi júní ekki talinn með ef ég skila kerrunni á Akureyri í dag sem ég og gerði. Dró hana á Kia svo Bílaleigan yrði ekki rukkuð um gjald í göngin. Ég keypti mér tvær gráelriplöntur, tvær seljur og einn purpurabrodd í Sólskógum í leiðinni. Mælisstaðan á LC 120030-119374=656km
Ég kom þessum eina steini til Kjartans Trausta sem okkur vantaði á mánudaginn og skilaði bílaleigubílnum. Sævar Guðbrands skutlaði mér heim til að skipta á bíl. Reikna með að klippa runnana fyrir hann á morgun. Einnig væri gott að ljúka verkinu hjá Kjartani, saga þessa steina sem eftir er að setja í vegginn.
Fór á þrid morgunn snemma á hjólinu suður, JHM Sport skipti um bremsudisk og klossa að aftan og var ég með bílaleigubílinn á meðan sem síðan var framlengt til að ég kæmi honum norður. Þessvegna leigði ég kerruna og ók norður í mikilli rigningu, en í það og snatt í Reykjavík fóru 20þúsund í olíu. Þetta plan gerði mér kleyft að erinda á fimmtudaginn 16 í stað þess að aka norður þann dag, en spáð var mikilli rigningu á 17.júní.
Neyðarþjónustan gat klónað svarta nothæfa svisslykilinn á hjólinu og á ég því tvo varalykla og annan til, en allir eru þeir svartir. Þann rauða fékk ég aldrei. Flagan í mínum nothæfa lykli var þeirrar gerðar að ein klónun kostaði 12.500kr og tók enga stund. Mér var tjáð að ég hefði ekki þurft að koma með hjólið. Alveg eins líklegt var að um aðra gerð væri að ræða en klónun hennar kostar 12.500kr og þá hefði ég þurft að koma með hjólið.
Free Lightbox Gallery