Er ekki svo eftir mig eftir laugardaginn með Kjarra sem hjálpaði mér við járnabindingu og að byrja á fjórða laginu. Tókum suðurhliðina til kl. 14:00 og eftir það tók ég austurgaflinn að dyrunum og eins sagaði ég úr tveimur neðstu lögunum norðan við dyrnar, sem gerðu ráð fyrir 8-10sm mjórri hurð en ég síðan fékk gefins hjá Kristjáni í VAL.

Önnur verk sem klárast hafa á liðnum dögum eru eyjan við N1, veggur við Húsið á Halldórsstöðum og lóðin hjá Kristjáni Eggertssyni að Lyngbrekku 3 hér á Húsavík.

Free Lightbox Gallery