2022-07-27 mid
Fékk í tölvupósti krækju á þetta video:
Allar færslur
Fékk í tölvupósti krækju á þetta video:
Er ekki svo eftir mig eftir laugardaginn með Kjarra sem hjálpaði mér við járnabindingu og að byrja á fjórða laginu. Tókum suðurhliðina til kl. 14:00 og eftir það tók ég austurgaflinn að dyrunum og eins sagaði ég úr tveimur neðstu lögunum norðan við dyrnar, sem gerðu ráð fyrir 8-10sm mjórri hurð en ég síðan fékk gefins hjá Kristjáni í VAL.
Önnur verk sem klárast hafa á liðnum dögum eru eyjan við N1, veggur við Húsið á Halldórsstöðum og lóðin hjá Kristjáni Eggertssyni að Lyngbrekku 3 hér á Húsavík.
Free Lightbox GallerySvaf vel og vaknaði í glaðasólskini. Lokið var við úrtak hjá Kristjáni Ben og þá er að bíða eftir Höfðavélum að fylla í.
Því skapaðist rými til að hlaða nokkrum steinum í geymsluna. Neðsta lagið er ekki í réttri hæð og því tafsamt í dag að reyna að rétta það af eftir að nákvæm hæð var tekin með lazer sem Kristján Ben lánaði mér. Lag tvö er langt komið.
Leit við hjá Atla á Laxamýri til að skoða grjót í vegg sem á að hlaða heim við húsið hans. Atli mun hafa samband við Vinnuvélar Eyþórs varðandi smágröfu til að grafa fyrir undirstöðum. Tíminn sem Eyþór getur komið verður því ráðandi um það hvenar verkið hefst.
Free Lightbox Gallery
Bara eins og undanfarin ár, anna ég ekki eftirspurn eftir vinnu. Þau verkefni sem ég hef verið beðinn um að inna af hendi eru kannski ekki of mörg en óskir varðandi tímasetningar valda spennunni þessa dagana.
Meðvirkni er sjúkdómur sem sennilega allir glíma við og er ég þar ekki undanskilinn. Einkennin birtast mér í formi erfiðleika við forgangsröðun og þar með ótta gagnvart viðbrögðum viðskiptavina við forgangsröðun minni. Forgangsröðun mín er er líkleg til að valda tortryggni og/eða óánægju í fyrsta lagi þar sem hún er ekki vel grundvölluð á dagsetningu verkbeiðna, heldur praktískari atriðum sem viðskiptavinir skilja ekki alltaf og eins vegna ákefð og framsetningu viðskiptavinarins.
Verkbeiðnir 19.júní 2022:
1. Halldórsstaðir Halldór Valdimarsson vegghleðsla
2. Halldórsstaðir Óli Páll og Sigurður Þór Snorrason vegghleðsla og jarðvegsskipti
3. Hrefna sjúkraþjálfi þjappa u.stétt f.fr. garðhús og hlaða vegg
4. Kjartan Trausta klára hleðslu og hellulagningu
5. Kristján í VAL kantur og hleðsla á framlóð
6. Óli Halldórs krónusnyrting á reynivið
7. Veiðiheimilið Árnesi, Völundur klippa runna
Verkið hjá vini mínum Kjartani Traustasyni fólst aðallega í því að skipuleggja og leysa 65sm hæðarmun milli gangstéttar og húss. Einn veggur alveg við gangstétt hefði verið varasamur vegna of mikillar fallhæðar, jafnvel þó að kantsteinninn hefði verið látinn standa 10sm upp fyrir gangstéttina. Því varð að skipta hæðinni þar sem munurinn var mestur, en á móts við mitt húsið(10m) var hæðin orðin um 25sm. Við völdum að leggja Tröllasteininn í stéttina alveg að götu upp á ásýndina. Í það notuðum við hálfa steina í sparnaðarskini sem sagaðir voru hjá Steinsteypi.
Hellurnar heita Flöguberg(30x40sm) en hleðslusteinninn Tröllasteinn eða Tröllakantur(40x24x17sm).
Free Lightbox Gallery