Allt snjófok frá því í gær var þiðnað í morgun og vel það því talsverð drulla var í bílastæðinu.
Hannaði og skissaði upp gróðurkassa og lamir á lok hans í dag og er ætlunin að koma þeim teikningum til trésmiðs.
Með því að snúa skaftinu upp, má draga það til og þannig út úr mótstikkinu og þannig taka lokið af.
Fyrir t.d. blómkál og hvítkál þarf að vera pláss, ca 30-50sm. Þurfi meira pláss má bæta við timbri til að dýpkva hann.
Með því að snúa skaftinu upp, má draga það til og þannig út úr mótstikkinu og þannig taka lokið af.
Þegar sveifinni er snúið upp 180gráður, má draga hana til þar sem grái titturinn dregst þá í gegnum þar til gerða rauf.
Sá aðili getur svo smíðað kassann fyrir Ólöfu og Ásgeir.
Í þetta fóru 6klst eða meira.
Ók eftir hádegið í Arnarvatn til gegninga, en það eru samtals sléttir 120km, en ekki tók hálftíma að brynna og gefa þessum fáu kindum sem þar eru á fóðrum.
Mér finnst gott að geta orðið þeim að liði. Tryggari ábúendur er varla hægt að hugsa sér.
Ég velti dálítið fyrir mér þessa dagana, fyrirkomulagi geymsluhúsnæðisins sem ég hyggst byggja í sumar. Steinarnir eru komnir hér heim í hlað, auk sperruefnis.
Með sperruefninu fékk ég trausta járnsnúrustaura, galvanhúðaða og vel útlítandi. Staðsetning þeirra kemur í ljós eftir að geymslan er komin á stað. Hinar snúrurnar þarf að færa.
Jón I hringdi um níuleitið og spjölluðum við vel saman. Ég er annars ekki í sambandi við marga fleiri en hann, vinnufélaga og sponsíuna mína.
Ég merki samt viðvarandi þörf til að spjalla við aðra og veit það bara á gott.